Málstofa um sementsfestun. Yfirlit, myndir og kynningar

​Þann 13. nóvember síðastliðinn buðu Steinsteypufélag Íslands og Mannvit uppá málstofu um sementsfestun í vegagerð. Þrír fyrirlesarar voru með erindi á málstofunni sem haldin var í höfuðstöðvum Mannvits í Kópavogi. Fyrstur tók til máls Karsten Iversen, varaformaður Steinsteypufélagsins. Hann fjallaði um sögu sementsfestunar á Íslandi og ræddi svo líka um þær áskoranir sem þurfti að […]

Minnum á málstofuna um sementsfestun næstkomandi þriðjudag

​Á þriðjudaginn í næstu viku, þann 13.nóvember, munu Steinsteypufélag Íslands og Mannvit halda morgunfund um sementsfestun í húsakynnum Mannvits, Urðarhvarfi 6, Kópavogi. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í hléi. Málstofan hefst klukkan 9.00 og klárast um klukkan 11.00 Skráning á [email protected] Með því að smella á auglýsinguna hér á neðan þá opnast hún […]

Málstofa um sementsfestun

​Á þriðjudaginn í næstu viku, þann 13.nóvember, munu Steinsteypufélag Íslands og Mannvit halda morgunfund um sementsfestun í húsakynnum Mannvits, Urðarhvarfi 6, Kópavogi. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í hléi. Málstofan hefst klukkan 9.00 og klárast um klukkan 11.00 Skráning á [email protected] til og með föstudagsins 9.nóvember.  Með því að smella á auglýsinguna hér […]

Aðalfundur Steinsteypufélags Íslands 2016

Aðalfundur Steinsteypufélags Íslands 2016 verður haldinn fimmtudaginn 26. maí næstkomandi kl. 17 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Árleyni 2-8, 112 Reykjavík. Dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar2. Skýrsla gjaldkera og samþykkt reikninga3. Lagabreytingar4. Kosning stjórnarmanna5. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga6. Ákvörðun félagsgjalda fyrir einstaklinga7. Önnur mál Kær kveðja,Stjórnin

Auglýsing – staða framkvæmdastjóra Steinsteypufélagsins

Stjórn Steinsteypufélagsins auglýsir hér með eftir nýjum framkvæmdastjóra félagsins. Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur félagsins, er jafnframt gjaldkeri félagsins og undirbýr fundi í samráði við stjórn. Stærsti atburður félagsins er Steinsteypudagurinn sem haldinn er í febrúar ár hvert.  Umsóknarfrestur er til 1. júní Umsóknir og fyrirspurnir sendist á [email protected]

Ráðstefna um frostþol steinsteypu miðvikudaginn 13. apríl í HR

Kæru félagar,  Steinsteypufélag Íslands í samvinnu við Norræna Steinsteypusambandið, Háskólann í Reykjavík og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir eins dags ráðstefnu um  frostþol steinsteypu þann 13. apríl nk.  Ráðstefnan er hugsuð sem vinnustofa þar sem reynt verður að virkja þátttakendur í umræðunni um fyrirbyggjandi aðgerðir varðandi frostskemmdir og kröfur til frostþolinnar steinsteypu.  Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum […]

Snæfellsstofa hlaut Steinsteypuverðlaunin 2016

​Steinsteypuverðlaunin 2016 voru veitt í fimmta sinn við hátíðlega athöfn á Steinsteypudeginum 2016 á Grand Hóteli þann 19. febrúar 2016 en þau eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Að þessu sinni er það Snæfellsstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs að Skriðuklaustri, sem hlýtur verðlaunin. Álit dómnefndar er […]

Steinsteypudagurinn 2016 – dagskrá

Steinsteypudagurinn 2016 verður haldinn þann 19. febrúar næstkomandi á Grand hótel. Hér að neðan má sjá dagskrá Steinsteypudagsins í ár – skráning á [email protected] fyrir 17. febrúar. Hlökkum til að sjá ykkur!​  

Skráning er hafin á Steinsteypudaginn 2016!

Steinsteypudagurinn 2016 verður haldinn þann 19. febrúar á Grand Hótel. Von er á spennandi og fræðandi dagskrá en dagskráin mun birtast á morgun. Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] eða fylla inn skráningarformið hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!        

Nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands 2016

Steinsteypufélagið hefur á stefnuskrá sinni að veita árlega verðlaun, ein eða fleiri, til nemenda sem hafa nýlega unnið að lokaverkefnum í tækniháskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum. Áskilið er að verkefnið fjalli um rannsóknir á steinsteypu eða hagnýta notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar […]