Steinsteypudagurinn 5.nóvember – Skráning er hafin!

Kæru félagar,  Skráning er hafin á Steinsteypudaginn 2021 sem haldinn verður þann 5.nóvember næstkomandi. Steinsteypufélagið verður 50 ára í ár og verðum við með stútfulla og æsispennandi dagskrá yfir allan daginn. Með því að smella á myndina hér að neðan þá opnast dagskráin í nýjum glugga.  Skráning á [email protected] fyrir 1.nóvember Endilega látið fylgja með kennitölu og heimilisfang, sem og […]

Nemendaviðurkenningar Steinsteypufélagsins

Steinsteypufélag Íslands veitir árlega viðurkenningar til námsmanna, sem klárað hafa lokaverkefni sín í tækniskóla eða háskóla. Áskilið er að verkefnið fjalli um grunnrannsóknir á steinsteypu eða tengt notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.  Umsóknum skal skilað fyrir 15.október á tölvupósti til félagsins á: […]

Steinsteypudagurinn og Sigmál, fréttabréf félagsins

– Lumar þú á grein eða fyrirlestri? Steinsteypudagurinn verður haldinn þann 5.nóvember næstkomandi á Grand Hótel. Steinsteypufélag Íslands verður 50 ára þann 11. desember og mun því áherslan verða á fortíð, nútíð og framtíð og má eiga von á hátíðardagskrá að þessu tilefni. Sigmál, fréttabréf félagsins mun koma út núna í lok október, fyrir Steinsteypudaginn eins og […]

STEINSTEYPUVERÐLAUNIN 2021

Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda er steinsteypa eitt helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2021. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Við valið verður haft […]

Steinsteypudagurinn 2021

Kæru félagar,  Nú er komið að því að Steinsteypudagurinn 2021 verði haldinn.  Dagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 5.nóvember næstkomandi á Grand Hótel.  Steinsteypufélag Íslands verður 50 ára þann 11. desember og munum við því leggja áherslu á fortíð, nútíð og framtíð steinsteypu á Íslandi og er von á spennandi dagskrá í þeim efnum.  Takið daginn frá! […]

Aðalfundur 2021

Kæru félagar,  Aðalfundur Steinsteypufélags Íslands 2021 verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi kl. 17 hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík ​Dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar2. Skýrsla gjaldkera og samþykkt reikninga3. Lagabreytingar4. Kosning stjórnarmanna5. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga6. Ákvörðun félagsgjalda fyrir einstaklinga7. Önnur mál ​ ​Kær kveðja,Stjórnin​

Þemafundur í dag: Steinsteypa – Verklýsingar og kröfur

Kæru félagar, Við viljum minna á fundinn okkar í dag, fimmtudaginn 29. apríl á Teams. Þemað að þessu sinni er: “Steinsteypa: Verklýsingar og kröfur” og fundarstjóri er Ingunn Loftsdóttir, varaformaður Steinsteypufélagsins.  Fyrirlesarar eru þrír og koma með stutt erindi frá framleiðanda, eftirliti og verktaka: “Gæði steinsteypu – frá teikningu í mót” – Kai Westphal, Steypustöðin.  “Til hvers eru verklýsingar” – Guðbjartur […]

Þemafundur, viðtal við formanninn á Rúv og norræn útgáfa

Þrátt fyrir að stjórnin hafi ekki enn hist í raunheimum á þessu stjórnarári þá höfum við alls ekki setið auðum höndum og fundað reglulega í netheimum. Um miðjan mars fór formaður félagsins, Børge, í viðtal hjá Rúv þar sem hann ræddi um starfsemi félagsins og þemafundinn okkar um umhverfisvæna steypu. Hlekk á viðtalið má finna […]

Þemafundur – Er steypan umhverfisvæn?

Þann 19. janúar síðastliðinn hélt Steinteypufélag Íslands sinn fyrsta þemafund ársins 2021. Var hann haldin í fjarfundi vegna aðstæðna og bar yfirskriftina „Er steypan umhverfisvæn?“. Mæting var mjög góð eða yfir 40 manns sem tóku sér tíma til að vera með. Á fundinum voru haldin þrjú erindi og opin umræða á eftir. Fundarstjóri var Ingunn […]

Rafrænn fundur í næstu viku og Steinsteypudeginum frestað

Kæru félagar, Eins og staðan er í samfélaginu í dag þá sjáum við okkur ekki annað fært en að fresta Steinsteypudeginum í ár, venjan er að halda Steinsteypudaginn þriðja föstudaginn í febrúar. Steinsteypudagurinn er ekki bara dagur fullur af áhugaverðum fyrirlestrum heldur einnig frábært tækifæri til að hitta aðra í bransanum og skrafa saman um […]

Fréttir af starfi félagsins

​Í haust tók við ný stjórn Steinsteypufélagins. Aðalbreytingar á stjórn frá því í fyrra eru þær að Karsten Iversen hætti í stjórn og inn í staðinn kom Börge Johannes Wigum. Lárus Helgi Lárusson færði sig úr varastjórn yfir í aðalstjórn og Guðbjartur Jón Einarsson fór úr aðalstjórn yfir í varastjórn. Á fyrsta fundi félagsins skipti […]

Opinn fundur: Steinefni í Steinsteypu

Kæru félagar,  Þriðjudaginn 24. nóvember næstkomandi mun Steinsteypufélag Íslands standa fyrir opnum fundi um Steinefni í Steinsteypu. Fundurinn verður rafrænn í gegnum Teams og hefst hann klukkan 10 og stendur til 11.30. Dagskrá fundarins er svohljóðandi: Framleiðsla og notkun steinefna í steypu– Børge Johannes Wigum, jarðverkfræðingur, Hornsteinn/HeidelbergCement Northern Europe. Prófunaraðferðir og kröfur til steinefna í steinsteypu – Alexandra Björk Guðmundsdóttir, […]