Steinsteypudagur 2014

Steinsteypudagurinn 2014 var haldinn á Grand hótel föstudaginn 21. febrúar 2014.

Boðið var upp á þétta og góða dagskrá með öflugum fyrirlesurum og tekið var á mörgum mikilvægum málum sem dynja á byggingariðnaðinum þessa dagana.
Í ár voru rúmlega 140 sem mættu á Steinsteypudaginn sem er frábær mæting og var dagurinn vel heppnaður í alla staði. Metmæting var á nemendum í ár en það voru 40 nemendur sem mættu og færum við Aalborg Portland, Norcem og Nýsköpunarmiðstöð Íslands okkar bestu þakkir fyrir að bjóða nemendum upp á frían mat á Steinsteypudaginn 2014.

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna í Steinsteypudeginum 2014. Hér að neðan má finna fyrirlestrana frá deginum í ár (með því að smella á hvern fyrirlestur fyrir sig, þá opnast skjalið í nýjum glugga). Enn sem komið er vantar örfáa fyrirlestra, en þeir eru væntanlegir á næstunni.

 

Dagskrá

08:30 Skráning og kaffisopi – Básar til sýnis
09:00 Setning – Kai Westphal, formaður Steinsteypufélags Íslands

Fræði & Vísindi
09:15 Alkalívirkni steinsteypu – Börge J. Wigum, Mannvit & Norstone
09:35 Framleiðslueftirlit með Petroscopi – Þorgeir S. Helgason, Petromodel
09:55 Fjaðurstuðull steinsteypu – Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Mannvit
10:15 Getur myglusveppur vaxið og dafnað á steinsteypu ? – Ríkharður Kristjánsson, Efla

10:35 Kaffihlé

Gæði & Eftirlit
10:55 Opinbert eftirlit – Jón Guðmundsson, Mannvirkjastofnun
11:15 Gæði steinsteypu, frá teikningu í mót – Kai Westphal, Steypustöðin
11:35 Nýr Evrópustaðall um hönnun steinsteypuvirkja – Haukur J. Eiríksson, HÍ & Hnit
11:55 Ábyrgð fagaðila – Ingibjörg Halldórssdóttir, Mannvirkjastofnun

12:15 Hádegismatur

Skipulag & Framkvæmdir>
13:15 Hús íslenskra fræða – Þórður Þorvaldsson, Hornsteinar
13:35 Elliðaárvogur – Rammaskipulag – Helgi Bollason Thóroddsen, Kanon Arkitektar
13:55 Nemendakynningar: Wassim I Mansour, Þorsteinn Eggertsson & Þórdís Björnsdóttir

14:45 Kaffihlé

Vistvænt & Steinsteypuverðlaunin
14:55 BREEAM, vottun fyrir betri byggingar – Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Vistbyggðaráð & Efla
15:15 CO2 upptaka í steypu / CO2 opptak i betong – Knut Kjellsen, Norcem
15:35 Passív hús – Þórhildur Kristjánsdóttir, Sintef
15:55 BREEAM & Steinsteypa – Ólafur H. Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands & HR
16:15 Verðlaunaafhending – Forseti Íslands, Herra Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Nemendaverðlaunin 2014
16:30 Ráðstefnulok – Kai Westphal, formaður Steinsteypufélags Íslands

Léttar veitingar í ráðstefnulok 

Skráning á [email protected] fyrir 18.febrúar

Heill dagur: 17.000 kr. með hádegisverði (14.000 án hádegisverðar)
Hálfur dagur: 9.500 kr. án hádegisverðar
Nemagjald: Frítt með hádegisverði, hámark 40 nemendur*
Básar: 35.000 kr. Innifalin ein skráning með hádegisverði

*Aalborg Portland, Norcem og Nýsköpunarmiðstöð Íslands bjóða nemendum upp á mat á Steinsteypudaginn í ár

Dagskrá Steinsteypudags 2014 til útprentunar