ÁHUGAVERÐIR VIÐBURÐIR FRAMUNDAN
Framundan eru ýmsir áhugaverðir viðburðir fyrir steypuáhugafólkÞar má fyrst nefna morgunfund félagsins um nýjungar í possolönum og íaukum en fjallað verður um calcincated clay og VPI Volcanic Pozzolan Iceland. Vinsamlegast athugið að áður auglýst tímasetning hefur breyst en fundurinn verður mánudaginn 23. maí kl. 9.00-10.30.Fundurinn verið rafrænn í gegn um TEAMS, hér má nálgast hlekk á fundinn. Aðalfundur félagsins verður 19. maí […]
BREYTT DAGSETNING: Possolanar og íaukar | Fjarfundur Steinsteypufélagsins 23. maí 2022

Steinsteypufélagið býður til fjarfundar 23. maí 2022 kl. 9.00-10.30Á fundinum verður fjallað um það nýjasta í possolönum og íaukum steypu: Almennt um calcinated clay. VPI Volcanic Pozzolan Iceland. Fundurinn verður haldinn rafrænt í gegn um TEAMS, hér má nálgast hlekk á fundinn.Við hlökkum til að sjá sem flesta!Kv, stjórnin.
Fjarfundur Steinsteypufélags Íslands um breytingar á byggingarreglugerð
Fjarfundur Steinsteypufélagsins um breytingar á steypukaflanum í byggingarreglugerð var vel sóttur en yfir 70 manns tengdust fundinum sem sýnir áhugann á þessu efni. Góðar umræður voru meðan á erindinu stóð, sem og eftir það. Einar Einarsson sagði frá breytingum og þeim áherslum sem voru lagðar til grundvallar. Leiðarstefið var að tryggja endingu og lágmarka umhverfisáhrif. […]
Breytingar á byggingarreglugerð
Steinsteypufélagið býður til fjarfundar 23. febrúar 2022 Á fundinum verður fjallað um fyrirhugaðar breytingar á steypukaflanum í byggingarreglugerð. Það eru þeir Eyþór Þórhallsson, HR, Einar Einarsson, BM Vallá og Guðbjartur Jón Einarsson, Mannvit/FSRE sem hafa haft veg og vanda að þessum breytingum. Einar og Guðbjartur kynna breytingarnar. Fundarstjóri verður Børge J. Wigum.Hvatt er til umræðna. […]
Fréttir af félaginu: Vefnámskeið ECSN 25. nóv., Steinsteypudagurinn og Sigmál
Steinsteypudagurinn og Sigmál Við viljum þakka öllum kærlega fyrir frábæran Steinsteypudag sem haldinn var 5. nóvember síðastliðinn. Um 100 manns mættu á daginn og var dagskráin í ár mjög fróðleg og skemmtileg. Þetta hefði ekki verið mökuleiki nema fyrir hjálp allra sem að honum stóðu; stjórrn, fyrirlesurum, þátttakendum og styrktaraðilum. Sementsverksmiðjan bauð upp á léttar […]
Steinsteypudagurinn 5.nóvember – Skráning er hafin!
Kæru félagar, Skráning er hafin á Steinsteypudaginn 2021 sem haldinn verður þann 5.nóvember næstkomandi. Steinsteypufélagið verður 50 ára í ár og verðum við með stútfulla og æsispennandi dagskrá yfir allan daginn. Með því að smella á myndina hér að neðan þá opnast dagskráin í nýjum glugga. Skráning á [email protected] fyrir 1.nóvember Endilega látið fylgja með kennitölu og heimilisfang, sem og […]
Nemendaviðurkenningar Steinsteypufélagsins
Steinsteypufélag Íslands veitir árlega viðurkenningar til námsmanna, sem klárað hafa lokaverkefni sín í tækniskóla eða háskóla. Áskilið er að verkefnið fjalli um grunnrannsóknir á steinsteypu eða tengt notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður. Umsóknum skal skilað fyrir 15.október á tölvupósti til félagsins á: […]
Steinsteypudagurinn og Sigmál, fréttabréf félagsins
– Lumar þú á grein eða fyrirlestri? Steinsteypudagurinn verður haldinn þann 5.nóvember næstkomandi á Grand Hótel. Steinsteypufélag Íslands verður 50 ára þann 11. desember og mun því áherslan verða á fortíð, nútíð og framtíð og má eiga von á hátíðardagskrá að þessu tilefni. Sigmál, fréttabréf félagsins mun koma út núna í lok október, fyrir Steinsteypudaginn eins og […]
STEINSTEYPUVERÐLAUNIN 2021
Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda er steinsteypa eitt helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2021. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Við valið verður haft […]
Steinsteypudagurinn 2021
Kæru félagar, Nú er komið að því að Steinsteypudagurinn 2021 verði haldinn. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur þann 5.nóvember næstkomandi á Grand Hótel. Steinsteypufélag Íslands verður 50 ára þann 11. desember og munum við því leggja áherslu á fortíð, nútíð og framtíð steinsteypu á Íslandi og er von á spennandi dagskrá í þeim efnum. Takið daginn frá! […]
Aðalfundur 2021
Kæru félagar, Aðalfundur Steinsteypufélags Íslands 2021 verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi kl. 17 hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík Dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar2. Skýrsla gjaldkera og samþykkt reikninga3. Lagabreytingar4. Kosning stjórnarmanna5. Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga6. Ákvörðun félagsgjalda fyrir einstaklinga7. Önnur mál Kær kveðja,Stjórnin
Þemafundur í dag: Steinsteypa – Verklýsingar og kröfur
Kæru félagar, Við viljum minna á fundinn okkar í dag, fimmtudaginn 29. apríl á Teams. Þemað að þessu sinni er: “Steinsteypa: Verklýsingar og kröfur” og fundarstjóri er Ingunn Loftsdóttir, varaformaður Steinsteypufélagsins. Fyrirlesarar eru þrír og koma með stutt erindi frá framleiðanda, eftirliti og verktaka: “Gæði steinsteypu – frá teikningu í mót” – Kai Westphal, Steypustöðin. “Til hvers eru verklýsingar” – Guðbjartur […]