Steinsteypuverðlaun 2024 | Óskað eftir ábendingum um mannvirki

Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda er steinsteypa eitt helsta byggingarefni Íslendinga.
 
Stjórn Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2024. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
 
Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:           

  • Sýni steinsteypu á áberandi hátt.
  • Sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks.
  • Búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu. Gæði og áferð steinsteypu vega þungt í mati.
  • Auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt.
  • Sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun.

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Viðurkenningin verður afhend á Steinsteypudeginum þann 2. febrúar 2024.   
 
Leitað er eftir ábendingum frá verk-, tækni- og byggingafræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum og frá skipulags- og bygginganefndum.
 
Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 28. desember 2023. Þeim fylgi eftirtalin gögn:
– heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi,
– verkkaupi,
– hönnunarteymi,
– framkvæmdaaðili og – framkvæmdaár,
– hvenær tekið í notkun,
– stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu,
– ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar).
 
Tillögur og fyrirspurnir skulu sendast á netfang félagsins: [email protected]
 
Stjórn Steinsteypufélags Íslands áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.
 
 
Stjórn Steinsteypufélags Íslands

Picture


Deila á samfélagsmiðlum: