Steinsteypudagur 2015

Steinsteypudagurinn 2015 var haldinn á Grand hótel föstudaginn 20. febrúar 2015 

Boðið var upp á þétta og góða dagskrá með öflugum fyrirlesurum og tekið á mörgum mikilvægum málum sem dynja á byggingariðnaðinum þessa dagana.

Nýjung í ár er að það var happdrætti fyrir fundamenn í lok dags. Verðlaunin voru ekki af verri endanum, þrjú gjafabréf fyrir tvo í gistingu í eina nótt með morgunverði á Íslandshótel – en Íslandshótel rekur 14 hótel vítt og breitt um landið. Sjá heimasíðu Íslandshótel.

Færum við Aalborg Portland, Norcem og Nýsköpunarmiðstöð Íslands okkar bestu þakkir fyrir að bjóða nemendum aftur upp á frían mat á Steinsteypudaginn 2015 eins og í fyrra. Einnig viljum þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna í Steinsteypudeginum 2015 og fyrirlesurum fyrir þeirra framlag.

Fyrirlestrarnir eru aðgengilegir hér að neðan með því að smella á hvern link fyrir sig.

Dagskrá
08:30 Skráning og kaffisopi – Básar til sýnis
09:00 Setning – Ólafur H. Wallevik, varaformaður Steinsteypufélags Íslands

Gæði
09:10 Nýsköpun í steinsteypu – Ólafur H. Wallevik, Nýsköpunarmiðstöð Íslands & HR
09:30 Gæðastjórnunarkerfi við mannvirkjagerð – Ferdinand Hansen, Samtök Iðnaðarins
09:50 Framkvæmdir við steypt mannvirki ÍST EN13670 – Einar Einarsson, BM Vallá
10:10 Fagurfræði sjónsteypu og gæðafrávik – Ævar Harðarson, Arkitekt FAÍ

10:30 Kaffihlé

Fræði & Bruni
10:50 Watertight Concrete Construction – Mike Lewis, SIKA
11:30 Áhrif brunaferla á hitaþróun í steinsteypu  – Atli Rútur Þorsteinsson, Efla
11:50 Steypa eftir bruna – Guðmundur Gunnarsson, Mannvirkjastofnun

12:10 Hádegismatur

Framkvæmdir
13:10 Ástandskönnun á norskri sprautusteypu – Gísli Guðmundsson, Mannvit
13:30 Brýr á næsta leiti – Guðmundur Valur Gunnarsson, Vegagerðin
13:50 Gröftur Vaðlaheiðarganga, óvæntar áskoranir – Einar Hrafn Hjálmarsson, ÍAV
14:10 Norðfjarðargöng: Gangagröftur og helstu vandamál – Birgir Jónsson, Hnit

14:30 Kaffihlé

Umhverfið, Nemendur & Steinsteypuverðlaunin
14:50 Fallegasta mannvirki á Íslandi: Elliðaárstöð, líkræða – Stefán Pálsson, Sagnfræðingur
15:10 Vindmyllur við Búrfell, reynsla og næstu skref – Óli Grétar Blöndal Sveinsson, Landsvirkjun 
15:30 Nemendakynningar & Nemendaverðlaun – Nemendur kynna verkefni sem hljóta nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands í ár
16:00 Steinsteypuverðlaun afhent – Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Mannvit
16:20 Happdrætti & Ráðstefnulok – Ólafur H. Wallevik, varaformaður Steinsteypufélags Íslands