Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- − sýni steinsteypu á áberandi hátt
- − sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks
- − búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
- − auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við
- umhverfi sitt
- − sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun
Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent á Steinsteypudeginum 19. febrúar 2016.
Óskað er eftir því að ábendingar berist undirritaðri fyrir 6. janúar 2016. Þeim fylgi eftirtalin gögn:
– heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi
– verkkaupi
– hönnunarteymi
– framkvæmdaaðili og – framkvæmdaár
– hvenær tekið í notkun
– stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
– ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar)
Nefndin áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.
Með vinsemd og virðingu,
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir
Formaður nefndarinnar
[email protected]