Kæru félagar,
Steinsteypufélag Íslands í samvinnu við Norræna Steinsteypusambandið, Háskólann í Reykjavík og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir eins dags ráðstefnu um
frostþol steinsteypu þann 13. apríl nk.Ráðstefnan er hugsuð sem vinnustofa þar sem reynt verður að virkja þátttakendur í umræðunni um fyrirbyggjandi aðgerðir varðandi frostskemmdir og kröfur til frostþolinnar steinsteypu.
Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum í Reykjavík
miðvikudaginn 13. apríl nk.Norrænir og innlendir fyrirlesarar munu halda erindi á ráðstefnunni en nánari dagskrá má sjá með því að smella á myndina hér að neðan.
Aalborg Portland, Sementsverksmiðjan og Nýsköpunarmiðstöð Íslands bjóða upp á kaffiveitingar og hádegismatinn á ráðstefnunni.
Bestu kveðjur,
Steinsteypufélag Íslands