Kæru félagar,
Nú þegar sumri fer senn að ljúka og haustið nálgast er spennandi vetur fram undan hjá Steinsteypufélagi Íslands. Mikil gróska er um þessar mundir í íslenskri mannvirkjagerð og ekki síst á sviði steinsteypu, þar sem rannsóknir, nýsköpun og þróun fara sífellt meira saman við kröfur um endingu, hagkvæmni og minni umhverfisáhrif.
Steinsteypa er eitt mikilvægasta byggingarefni samfélagsins og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu innviða og mannvirkja um allt land. Um leið standa greinin og samfélagið frammi fyrir áskorunum sem tengjast loftslagsmálum, nýtingu auðlinda og auknum kröfum til mannvirkja. Því er mikilvægt að þróun nýrra lausna byggi á rannsóknum, prófunum og reynslu við íslenskar aðstæður.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þá uppbyggingu sem nú á sér stað á þessu sviði. Þrjú umfangsmikil rannsóknar- og þróunarverkefni um umhverfisvænni steypu hafa hlotið stuðning úr helstu rannsóknar- og nýsköpunarsjóðum landsins: Vistvæn gæðasteypa, styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar, Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður, styrkt af Aski mannvirkjarannsóknasjóði HMS, og Umhverfisvæn steypa til framkvæmda, styrkt af Tækniþróunarsjóði Rannís.
Verkefnin eru unnin í Tæknisetri í samstarfi við fjölmarga aðila úr atvinnulífi, háskólasamfélagi og opinberum stofnunum. Þar er að byggjast upp öflugur vettvangur fyrir rannsóknir, prófanir og þróun steinsteypu við íslenskar aðstæður. Markmiðið er ekki aðeins að draga úr kolefnisspori steinsteypu heldur jafnframt að tryggja að nýjar lausnir uppfylli þær kröfur sem við gerum til gæða, endingar og öryggis mannvirkja.
Steinsteypufélag Íslands hefur mikilvægu hlutverki að gegna í þessari þróun. Félagið er sameiginlegur vettvangur þeirra fjölmörgu aðila sem koma að steinsteypu og mannvirkjagerð og getur þannig tengt saman atvinnulíf, rannsóknir og fræðasamfélag. Með fræðslu, faglegri umræðu og miðlun nýrrar -þekkingar getum við stuðlað að því að niðurstöður rannsókna og reynsla úr framkvæmdum skili sér áfram inn í íslenska mannvirkjagerð.
Fram undan er spennandi starfsár hjá félaginu. Stjórnin mun leggja áherslu á öfluga fræðslu og viðburði, miðlun þekkingar og aukin tengsl við rannsóknir og þróun, bæði innanlands og erlendis. Við viljum jafnframt hvetja ungt fagfólk til þátttöku og skapa vettvang þar sem ólíkar kynslóðir og faggreinar geta miðlað reynslu og lært hver af annarri.
Stjórnin hlakkar til vetrarins og samstarfsins við félagsmenn. Það eru mörg spennandi verkefni fram undan og ég vona að sem flestir taki virkan þátt í starfi félagsins.
Fyrir hönd stjórnar Steinsteypufélags Íslands,
Ólafur Sveinn Haraldsson, Ph.D.
Formaður