Næsti ECSN veffundur verður fimmtudaginn 26. febrúar n.k.
Á fundinum verður fjallað um hvernig Evrópa styrkir framtíð byggðar og flýtir fyrir umbreytingu yfir í kolefnissnauð efni. Annar stjórnenda fundarins er Børge Johannes Wigum, sem er okkur mörgum að góðu kunnur og fyrrum formaður félagsins.
Nánar má lesa um viðburðinn hér: Current and future trends in the concrete sector – ECSN
Frítt er á fundinn en óskað er skráningar.
Stjórn Steinsteypufélagsins hvetur áhugasama að sækja viðburðinn, en hann er ætlaður þeim sem starfa innan mannvirkjageirans og áhugafólks um innviði og sjálfbærni.