Steinsteypudagur 2014 Myndir
Undir ‘Steinsteypudagur 2014’ eru nú komnar myndir frá Steinsteypudeginum í ár. Sjá HÉR
Fjaðurstuðull – Morgunkaffi 6.maí
Steinsteypufélag Íslands heldur morgunfund þann 6. maí næstkomandi þar sem fjallað verður um fjaðurstuðul steinsteypu. Dagskrá hefst kl. 9:00 og lýkur kl.11:40. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík. Nánari upplýsingar á næstu dögum. Skráning hér: [email protected]
Fjaðurstuðull – Morgunkaffi 6.maí Dagskrá
Næstkomandi þriðjudag, 6.maí heldur Steinsteypufélag Íslands morgunkaffi sem ber heitið: „Hærri fjaðurstuðull, hærra steinsteypuverð?“ þar sem rætt verður hvaða áhrif hlutefni hafa á fjaðurstuðul og hvaða áhrif fjaðurstuðull hefur á byggingarhluta og færslur þeirra. Fundurinn verður haldinn í sal M105 í Háskólanum í Reykjavík, hefst fundurinn kl. 9:00 og lýkur kl. 11:40. Boðið verður […]
Tvenn steinsteypuverðlaun komin á frímerki
HönnunarMars fór fram í sjötta sinn dagana 27.-30.mars síðastliðinn. Hönnunarmars spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða sem eru stíga sín fyrstu skref. Á Hönnunarmars í ár voru gefin út fjögur ný frímerki í fimmtu seríu af hönnunarfrímerkjum (arkitektúr). Það er skemmst frá því að […]
A Concrete Week 11.-15. ágúst 2014 – Ágrip (e. Abstract) skilafrestur 1.apríl
Dagana 11. – 15. ágúst nk. verða haldnar þrjár alþjóðlegar steypuráðstefnur í Hörpunni á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og samstarfsaðila. Vikan, sem ber nafnið „A CONCRETE WEEK“, hefst á mánudegi með námskeiðahaldi á vegum Nordic Concrete Federation og Nordic Rheology Society. Á miðvikudeginum 13. ágúst hefst ráðstefnuhaldið svo formlega með sameiginlegri setningu ráðstefnanna þriggja í Eldborgarsal […]
Steinsteypudagurinn 2014 – Fyrirlestrar komnir á netið
Kæru félagar, Steinsteypudagurinn 2014 var haldinn á Grand hótel föstudaginn 21. febrúar 2014 síðastliðinn. Boðið var upp á þétta og góða dagskrá með öflugum fyrirlesurum og tekið var á mörgum mikilvægum málum sem dynja á byggingariðnaðinum þessa dagana. Í ár voru rúmlega 140 sem mættu á Steinsteypudaginn sem er frábær mæting og var dagurinn vel […]
Styrkur Steinsteypufélagsins til námsmanna 2014
Steinsteypufélagið hefur á stefnuskrá sinni að veita árlega styrk, einn eða fleiri, til námsmanna sem vinna að lokaverkefnum í tækniháskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum í háskóla.Áskilið er að verkefnið fjalli um rannsóknir á steinsteypu eða hagnýta notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.Hér […]
Steinsteypudagurinn 2014 – Skráning til 18.febrúar !
Steinsteypudagurinn 2014 verður haldinn á Grand hóteli föstudaginn 21. febrúar 2014 klukkan 8.30 – 17.00 Boðið er upp á þétta og góða dagskrá með öflugum fyrirlesurum og tekið á mörgum mikilvægum málum sem dynja á byggingariðnaðinum þessa dagana. Dagskrá08:30 Skráning og kaffisopi – Básar til sýnis09:00 Setning – Kai Westphal, formaður Steinsteypufélags Íslands Fræði & […]
Steinsteypuverðlaunin 2014 – Ábending mannvirkis
Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar enda steinsteypa helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins í fjórða sinn. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.Við valið verður haft að leiðarljósi að […]
Steinsteypudagur 2014
Steinsteypudagurinn 2014 verður haldinn föstudaginn 21. febrúar 2014 á Grand Hótel. Stjórn félagsins er í óðaönn þessa dagana að bóka fyrirlesara og er von á fróðlegum og fjölbreyttum steinsteypudegi. Takið daginn frá!