Kæru félagar,
fimmtudaginn 24. september kl. 16.00 stendur Steinsteypufélagið fyrir heimsókn til Einingaverksmiðjunnar að Koparhellu 5, Hafnarfirði.
Forsvarsmenn Einingaverksmiðjunnar munu taka á móti okkur og segja okkur frá því framleiðslunni.
Nauðsynlegt er að vera í sýnileikavesti og með hjálm og æskilegt er að vera í öryggisskóm með stáltá.
ATHUGIÐ: Hver og einn kemur sér sjálfur á staðinn.
Staðsetning: Koparhella 5, 221 Hafnarfjörður, sjá hér
Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir kl. 12 miðvikudaginn 23. september:
https://docs.google.com/forms/d/1N9-9KrAd44qgLm_wMcb-7vrNMILLXxYa1fVk_VmXJrQ/edit
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Kveðja,
stjórnin