Aðalfundur félagsins var haldinn mánudaginn 18. maí hjá COWI Ísland. Átta manns mættu á fundinn sem þykir góð mæting á viðburð sem þennan.
Hefðbundnum aðalfundarstörfum var fylgt, þar á meðal greindi fráfarandi formaður frá skýrslu stjórnar um verkefnin frá síðasta aðalfundi.
Ný stjórn var kjörin og hefur hún nú þegar skipt með sér verkum:
Ólafur Sveinn Haraldsson, formaður
Ágúst Pálsson, varaformaður
Björn Davíð Þorsteinsson, meðstjórnandi
Jóhann Albert Harðarson, meðstjórnandi
Haraldur Ketill Guðjónsson, meðstjórnandi
Erla Margrét Gunnarsdóttir, varamaður
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir er áfram framkvæmdastjóri
