Steinsteypudagur 2026

Hinn árlegi Steinsteypudagur 2026 var haldinn föstudaginn 27. febrúar síðastliðinn. Dagurinn var haldinn á Grand Hótel í Reykjavík eins og hefur verið hefð fyrir. Góð mæting var en um 145 manns voru skráðir og var stemningin í Háteigi mjög góð.

Að venju voru fjölbreyttir fyrirlestrar og góðar umræður. Félagið fékk Berit Gudding Petersen til að kynna yfirvofandi breytingar á EN 206 steypustaðlinum sem taka fljótlega gildi. Berit situr í tækninefndinni sem stýrir þessum breytingum.

Í erindi Gústafs Hermannssonar kom fram að erindi á Steinsteypudegi 2025 hefði undirstrikað þörf á leiðbeiningum á sviði niðurlagnar og aðhlúunar steinsteypu og leiddi til þess að HMS lagði í endurskoðun á Rb blaði. Þetta sýnir ótvírætt mikilvægi þess starfs sem Steinsteypufélagið stendur fyrir.

Mörg önnur fróðleg erindi voru flutt, m.a. um vindmylluundirstöður í Vaðölduveri, þann vanmetna skaðvald sem kuldabrýr í íslenskum byggingum er, sjónarmið verktakans og tækifæri og áskoranir tengdar LCA kröfu í byggingarreglugerð.

Fjallað var um hvers vegna við erum ekki að velja umhverfisvæna steypu, Loka sem er tæki til að meta korlefnisspor framkvæmda og hefur verið þróað á vegum Vegagerðarinnar, EVO-zero sement og hvað telst vera hátt lágt kolefnisspor í steyptu íbúðarhúsi í Reykjavík.

Andri Snær Magnason kom og velti því upp hver hugsar um steypuarfinn og Þórarinn Hjartarson stýrði pallborðsumræðum um loftslagsmál og sjálfbærni.

Veitt var ein nemendaviðurkenning en í ár var það Ágúst Pálsson sem hlaut þau fyrir lokaverkefnið sitt Rakaþétting vegna kuldabrúa í íslenskum útveggjum – töluleg hermun á áhrifum loftflæðis á innilofti, M.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands.

Steinsteypudagurinn 2027 verður haldinn föstudaginn 26. febrúar, upplýst verður um staðsetningu þegar nær dregur – takið daginn frá!

Takk fyrir okkur og hlökkum til að sjá ykkur að ári.

Deila á samfélagsmiðlum: