Kæru félagar,
föstudaginn 29. ágúst kl. 16.00 stendur Steinsteypufélagið fyrir heimsókn í Safamýri 60 þar sem ÍSTAK byggir fjölbýlishús úr forsteyptum einingum.
Óskar Helgason, yfirverkefnastjóri, Jón Ingi Georgsson, staðarstjóri í Safamýrinni og Svavar Heimisson, framleiðslustjóri steypuskála ÍSTAKS munu taka á móti okkur og segja okkur frá framkvæmdinni.
Nauðsynlegt er að vera í sýnileikavesti og með hjálm og æskilegt er að vera í öryggisskóm með stáltá.
ATHUGIÐ: Hver og einn kemur sér sjálfur á staðinn.
Staðsetning: Safamýri 60, sjá hér.
Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir kl. 12 fimmtudaginn 28. ágúst.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Kveðja,
stjórnin
