Stofnfundur um stofnun spegilnefndar vegna staðla sem tengjast steinsteypu.

Fundurinn verður haldinn hjá COWI í fundarherbergi 111 og hefst hann kl. 11:00, 28.júní 2024 og er haldinn í samráði Steinsteypufélagsins og Byggingarstaðlaráðs.

Allir hagaðilar eru velkomnir á fundinn og geta tekið þátt í vinnu nefndarinnar. Hvetjum sérstaklega þá sem vinna við hönnun og/eða efnisprófanir í tengslum við steinsteypu í víðasta skilningi að taka þátt í stofnfundi.

Dagskrá:

  1. Kynning á starfsemi spegilnefnda vegna Evrópskra og/eða alþjóðlegra staðla.
  • Farið yfir verkefnasvið nefndarinnar
  • Kallað eftir þátttakendum í spegilnefnd úr hópi fundarmanna ( einnig verður hægt að koma til liðs við nefndina á seinni stigum)
  • Kosning formanns
  • Önnur mál

Þorbjörg Hólmgeirsdóttir hjá Steinsteypufélaginu mun stýra fundinum.

Arngrímur Blöndahl hjá Byggingarstaðlaráði mun sjá um kynningu verkefnisins í dagskrárlið 1 og 2.

Deila á samfélagsmiðlum: