Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda er steinsteypa eitt helsta byggingarefni Íslendinga. Liður í þeirri viðleitni hefur verið að kalla eftir ábendingum vegna Steinsteypuverðlauna en viðurkenningin er veitt mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
Leiðarljósið er að mannvirkið:
- sýni steinsteypu á áberandi hátt,
- sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæða steinsteypu og handverks,
- búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu. Gæði og áferð steinsteypu vega þungt í mati,
- auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt,
- sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun.
Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Viðurkenningin verður afhent á Steinsteypudeginum þann 28. febrúar 2025.
Leitað er eftir ábendingum frá verk-, tækni- og byggingafræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum og frá skipulags- og bygginganefndum.
Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 15. janúar 2025. Þeim fylgi eftirtalin gögn:
- heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi,
- verkkaupi,
- hönnunarteymi,
- framkvæmdaaðili og – framkvæmdaár,
- hvenær tekið í notkun,
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu,
- ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar).
Tillögur og fyrirspurnir skulu sendast á netfang félagsins: [email protected]
Stjórn Steinsteypufélags Íslands áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.
Stjórn Steinsteypufélags Íslands