Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar enda steinsteypa helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2015. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.
Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- − sýni steinsteypu á áberandi hátt
- − sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks
- − búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
- − auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við
umhverfi sitt
− sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun
Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent á Steinsteypudegi í febrúar 2015.
Sjá nánari upplýsingar með því að smella á myndina hér að neðan.