Steinsteypudagur 2023

Steinsteypudagurinn 2023 var haldinn á Grand hótel, föstudaginn 10.febrúar 

Að venju var dagurinn fjölsóttur en um 100 manns voru skráðir.

Erindi voru fjölbreytt, afar fróðleg og vel flutt. Er öllum þeim sem gáfu sér tíma til að flytja erindi þakkað kærlega fyrir þeirra innlegg en án þeirra væri ekki mögulegt að bjóða upp á Steinsteypudaginn.

Að þessu sinni var ákveðið að sleppa spurningum strax að afloknum erindum en bjóða þess í stað upp á pallborðsumræður eftir hverja sessjón. Gafst það fyrirkomulag vel og umræður voru líflegar. Þar til viðbótar var boðið upp á umræður um vistvæna framtíð, þær hindranir sem bransinn upplifir á vegferðinni að vistvænni steypu og hvernig við getum leyst þær. Þar var margt gagnlegt sem kom fram en HMS hyggst, í samvinnu við Steinsteypufélagið, vinna fræðsluefni vegna nýlegra breytinga á byggingarreglugerð um vistvænar lausnir í steypu. Að lokum voru nemendaviðurkenningar og Steinsteypuverðlaunin 2023 afhent.

Við færum eftirtöldum verkfræðistofum okkar bestu þakkir fyrir að bjóða nemendum upp á frían mat og nemendaviðurkenningar:

Að formlegri dagskrá lokinni voru léttar veitingar í boði Sementsverksmiðjunnar og Aalborg Portland og eru þeim færðar kærar þakkir yfir veittan stuðning.