Ný stjórn kjörin

Aðalfundur félagsins var haldinn fimmtudaginn 15. maí hjá Vegagerðinni.

Hefðbundnum aðalfundarstörfum var fylgt, þar á meðal greindi fráfarandi formaður frá skýrslu stjórnar um verkefnin frá síðasta aðalfundi, 14. maí 2024, sjá hér.

Ný stjórn var kjörin og hefur hún nú þegar skipt með sér verkum:
Andri Jón Sigurbjörnsson, Steypustöðin, formaður
Ólafur Sveinn Haraldsson, Vegagerðin, varaformaður
Ágúst Pálsson, Verkís, meðstjórnandi
Björn Davíð Þorsteinsson, BM Vallá, meðstjórnandi
Óskar Helgason, Ístak, meðstjórnandi
Jóhann Albert Harðarson, Háskólinn í Reykjavík, starfandi varamaður
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, COWI, er áfram framkvæmdastjóri

Fyrr um daginn var heimsókn félagsins í starfsstöð Steypustöðvarinnar á Hringhellu í Hafnarfirði. Þar tók Andri Jón Sigurbjörnsson, formaður félagsins vel á móti félagsfólki. Um 10 manns mættu á viðburðinn. Stjórn þakkar kærlega fyrir góðar móttökur.

Deila á samfélagsmiðlum: